Kristín Helga Gunnarsdóttir hlaut hinn 9. september Barna-og unglingabókaverðlaun Vestnorræna ráðsins 2008 fyrir skáldsöguna Draugaslóð.  Verðlaunin sem nema um milljón íslenskra króna voru veitt við hátíðlega athöfn í Alþingishúsinu.

 

Í rökstuðningi dómnefndar segir meðal annars að bókin sé kærkomin fyrir unglinga á öllum aldri, sagan sé full af mótsetningum þar sem draumur og veruleiki skarist áþreifanlega en samspil þeirra hjálpar til við að leysa leyndardóminn í bókinni.  Dómnefndin leggur jafnframt áherslu á að bókin taki fyrir hversdagsleg málefni, svo sem vanda einstæðra foreldra og barna þeirra.

 

Dómnefndin er einkar hrifin af því hvernig Kristín Helga Gunnarsdóttir fléttar íslenskan þjóðsagnaarf fimlega inn í söguna, grefur djúpt í gamlar sagnir og skapar skáldsögu sem styðst við sagnirnar og þá staði sem sögurnar eru tengdar. Draugaslóð er auðug saga af líflegum og sterkum persónum sem lesendur trúa á, stíllinn leikandi og fagmannlegur, tilgerðarlaus en þó ávallt fallegur.

 

Draugaslóð segir frá Eyvindi Þórusyni, þrettán ára, sem hefur alist upp hjá ömmu sinni við Elliðavatn, sérkennilegri konu sem er jafnvíg á bifvélaviðgerðir, brúðarkjólasaum og listmálun. Í upphafi sögu flytur móðir hans heim til Íslands frá Ítalíu og til að kynnast drengnum sínum ræður hún sig sem skálavörð á Kili, vitandi hve gífurlegan áhuga Eyvindur hefur á útilegumönnum og öðrum þjóðsagnapersónum. Hann fer með henni og sumarið verður í meira lagi viðburðaríkt. Mikið er lagt á Eyvind en hann stenst hverja raun, líka þá að vera heilt sumar með mömmu sem hann þekkir ekki.

 

Kristín Helga hefur helgað sig skrifum fyrir börn og unglinga í áratug og nær einstaklega vel til barna. Ár eftir ár hafa bækur eftir hana fengið Bókaverðlaun barnanna en atkvæðisrétt þar hafa börn á aldrinum 6-12 ára.“

 

 

Þetta er í fjórða skipti sem verðlaunin eru veitt en þeim er úthlutað annað hvert ár.  Dómnefnd barnabókaverðlaunanna skipaði Oddfríður Marni Rasmussen frá Færeyjum, Vera Lise Rosing Olsen frá Grænlandi og Silja Aðalsteinsdóttir frá Íslandi.

 

Auk Draugaslóðar voru barnabækurnar Apollonia frá Færeyjum eftir Edward Fuglø og Abct frá Grænlandi eftir Julie Edel Hardenberg tilnefndar.

 

Árið 2002 hlaut bókin Sagan af bláa hnettinum eftir Andra Snæ Magnason verðlaunin, árið 2004 bókin Engill í vesturbænum eftir Kristínu Steinsdóttur og Höllu Sólveigu Þorgeirsdóttur og árið 2006 hlaut færeyska bókin Hundurinn, kötturinn og músin eftir Bárð Oskarsson verðlaunin, en hún er komin út í íslenskri þýðingu.

Á myndinni er Kristín Helga ásamt eiginmanni sínum Helga Geirharðssyni.