Unnur Brá Konráðsdóttir kjörin formaður Vestnorræna ráðsins

Ársfundur Vestnorræna ráðsins kaus Unni Brá Konráðsdóttur, þingmann Sjálfstæðisflokksins og formann Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins, formann ráðsins á 29. ársfundi þess sem haldinn er í Narsarsuaq í Suður-Grænlandi dagana 19. til 20. ágúst.

Unnur Brá Konráðsdóttir tekur við embættinu af Lars-Emil Johansen, forseta grænlenska Landsþingsins, sem heitir Inatsisartut eftir að Grænland hlaut sjálfstjórn.

Unnur Brá sagði í ræðu sinni á fundinum að í formennskutíð sinni myndi hún leggja höfuðáherslu á að þrýsta á ríkisstjórnir Íslands, Færeyja og Grænlands að styrkja Norðurskautssamstarf landanna. Hún sagði jafnframt að hún myndi vinna að því að tryggja áheyrnaraðild Vestnorræna ráðsins að Norðurskautsráðinu, en samþykkt var á ársfundinum að sækja um þess slags aðild. Þá sagðist hún ætla að leggja áherslu á að löndin efldu samstarf sitt í heilbrigðismálum og þá sérstaklega það sem hefur í för með sér efnahagslegan ávinning fyrir löndin.

Unnur Brá gerði að umtalsefni aðgerðir ESB í tengslum við makrílveiðar Íslands og Færeyja og síldveiðar Færeyja, sem og stuðning sjávarútvegsráðherra Noregs við þær. Hún sagðist mundu taka ályktun ársfundarins um málið upp með sendinefnd Evrópuþingsins, en í ályktuninni, sem lesa má hér, er ESB gagnrýnt harðlega fyrir hótanir sínar í garð Færeyja og Íslands og bent á að slíkt eigi ekki við í samskiptum siðaðra þjóða.

Að auki benti Unnur Brá á að Vestur-Norðurlönd hafi fullan rétt á að stunda sjálfbærar veiðar á hvölum og selum.

Auk Unnar Brár sitja Lars-Emil Johansen, forseti Landsþings Grænlands, og Bill Justinussen, þingmaður í Færeyjum, í forsætisnefnd Vestnorræna ráðsins.

Formaður ráðsins er kjörinn til eins árs. Vestnorræna ráðið er samstarfsvettvangur Alþingis, Landsþings Grænlands og Lögþings Færeyja. Löndin þrjú skipa sex fulltrúa hvert í Vestnorræna ráðið.

Upplýsingar um Unni Brá má nálgast hér.