Ársfundur Vestnorræna ráðsins kaus Ólínu Þorvarðardóttur, þingmann Samfylkingarinnar og formann Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins, formann ráðsins á 26. ársfundi þess sem haldinn er í Tasilaq (Ammassaliq) í Austur-Grænlandi dagana 23. til 26. ágúst.

Ólína Þorvarðardóttir tekur við embættinu af Josef Motzfeldt forseta grænlenska Landsþingsins sem heitir Inatsisartut eftir að Grænland hlaut sjálfstjórn.

Ólína sagði í ræðu, sem hún hélt er hún tók við embættinu, að í formennskutíð sinni myndi hún leggja höfuðáherslu á að þrýsta á ríkisstjórnir Íslands, Færeyja og Grænlands að styrkja samstarf landanna varðandi sjávarútvegsmál og að ná samkomulagi um sameiginlega stjórnun veiða úr deilistofnum til að tryggja sjálfbærar veiðar úr þeim.  Hún sagðist jafnframt ætla að leggja áherslu á að löndin efldu samstarf sitt í menntamálum og þá sérstaklega hvað varðar fjarnám.

Ólína lagði jafnframt áherslu á í ræðu sinni að efla bæri þá starfsemi ráðsins sem felst í að kynna hagsmuni svæðisins og áherslur samstarfsins í öðru alþjóðasamstarfi, svo sem í þingmannasamstarfinu um norðurskautsmál og Norðurlandaráði.  Það væri ekki síst mikilvægt í ljósi þeirra breytinga sem hlýnun í og við norðurskautið hafa í för með sér.

Á fundinum voru samskipti Vestur-Norðurlanda við ESB rædd, lýst yfir rétti landanna til sjálfbærra veiða hvala og sela auk þess sem ríkissjónvarpsstöðvarnar voru hvattar til samstarfs um að auka fréttaflutning frá nágrannalöndunum.  Ráðið hvatti jafnframt til að einokun birgðasiglinga á austurströnd Grænlands yrði aflétt.

Auk Ólínu sitja Josef Motzfeldt forseti Landsþings Grænlands og Kári P. Højgaard þingmaður í Færeyjum í forsætisnefnd Vestnorræna ráðsins.

Formaður ráðsins er kjörinn til eins árs.  Vestnorræna ráðið er samstarfsvettvangur Alþingis, Landsþings Grænlands og Lögþings Færeyja.  Löndin þrjú skipa sex fulltrúa hvert í Vestnorræna ráðið.

Upplýsingar um Ólínu má nálgast á slóðinni: http://www.althingi.is/altext/cv.php4?nfaerslunr=715