Gerður Kristný hlýtur bókmenntaverðlaun Vestnorræna ráðsins

Gerður Kristný hlaut í morgun Barna-og unglingabókaverðlaun Vestnorræna ráðsins 2010 fyrir skáldsöguna Garðurinn.  Ólína Þorvarðardóttir formaður ráðsins og prófessor Dagný Kristjánsdóttir afhentu Gerði Kristnýju verðlaunin sem nema um 1,2 milljón íslenskra króna við hátíðlega athöfn í Alþingishúsinu.

Þetta er í fimmta skipti sem verðlaunin eru veitt en þeim er úthlutað annað hvert ár.  Dómnefnd barnabókaverðlaunanna skipaði Oddfríður Marni Rasmussen frá Færeyjum, Vera Lise Rosing Olsen frá Grænlandi og prófessor Dagný Kristjánsdóttir frá Íslandi.

Í rökstuðningi dómnefndar segir meðal annars að Garðurinn sé ,,unglingabók, samtímasaga og fortíðarsaga, skrifuð af fagmennsku og sjaldgæfum glæsibrag. Nútíð og fortíð tengjast í mörgum hliðarsögum og mörkin milli hins þekkta og óþekkta eru dregin í efa.

Garðurinngerist í Reykjavík. Gerður Kristný blandar saman ólíkum bókmenntagreinum og beitir aðferðum draugasagna, fantasíu, sálfræðilegra þroskasagna og sögulegra skáldsagna. Íslandssagan leikur stórt hlutverk í skáldsögunni.

Spænska veikin (1918) lagðist þungt á Reykjavík. Annar áratugur aldarinnar sem leið er í bakgrunni sögunnar og að honum beinist ótti aðalpersónunnar við hið óþekkta og þau eyðingaröfl sem reynast ekki alltaf koma utan frá heldur geta einnig búið innra með okkur. Í þessari bók tekst höfundinum fagurlega að sameina þekkingu, skemmtun og listrænt gildi.”

Garðurinnsegir frá unglingsstúlkunni Eyju sem flytur með foreldrum sínum í hús á móti gamla kirkjugarðinum við Suðurgötu. Eyju bregður þegar hún lítur út um gluggann og sér hinum megin við götuna gríðarmikinn kirkjugarð, fullan af legsteinum og krossum. Faðir hennar er sagnfræðingur sem er að rannsaka sögu spænsku veikinnar 1918. Hann kaupir brúnan leðurstól í antíkbúð niðri í bæ. Foreldrum Eyju finnst hann algert æði en hún finnur strax að stólnum fylgir eitthvað sem er óvelkomið inn á heimilið. Dularfullir atburðir eiga sér stað í kjölfarið og virðast tengdir stólnum. Þegar foreldrarnir veikjast lífshættulega af ókunnum sjúkdómi verður Eyja að taka upp baráttu við hin illu öfl til að bjarga þeim.

Gerður Kristnýer með BA-próf í frönsku frá Háskóla Íslands með almenna bókmenntafræði sem aukafag. Gerður Kristný stundaði jafnframt nám í hagnýtri fjölmiðlun 1992-1993.  Eftir hana liggur fjöldi bóka.  Hún hefur ritað barnabækur, skáldsögur, ævisögu, ljóðabækur auk þess sem ljóð hennar og smásögur hafa birst í ýmsum safnritum, erlendum sem íslenskum.  Von er á nýrri ljóðabók eftir Gerði Kristnýju með haustinu.

Auk Garðsins voru barnabækurnar Várferðin til Brúnna frá Færeyjum eftir Rakel Helmsdal og Sila frá Grænlandi eftir Lana Hansen tilnefndar.

Árið 2002 hlaut bókin Sagan af bláa hnettinum eftir Andra Snæ Magnason verðlaunin, árið 2004 bókin Engill í vesturbænum eftir Kristínu Steinsdóttur og Höllu Sólveigu Þorgeirsdóttur, árið 2006 hlaut færeyska bókin Hundurinn, kötturinn og músineftir Bárð Oskarsson verðlaunin og árið 2008 bókin Draugslóð eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur.