Fyrsti fundur þingmannanefndar Hoyvíkursamningsins

 Búið er að setja á stofn þingmannanefnd Hoyvíkursamningsins.  Í nefndinni eiga sæti þingmenn frá Alþingi og Lögþingi Færeyja.  Fyrsti fundur nefndarinnar var haldinn í Tórshavn á Færeyjum í vikunni.  Hlutverk þingmannanefndarinnar verður að fylgjast með framkvæmd samningsins, ræða þróun hans og leggja til umbætur ef við á.

Á fyrsta fundi nefndarinnar var Magni Laksáfoss lögþingsmaður kjörinn formaður og Ólína Þorvarðardóttir alþingismaður varaformaður.

Alþingi og Lögþing Færeyja velja 6 þingmenn hvort til setu í þingmannanefndinni.  Grænland skipar 6 þingmenn sem eru áheyrnarfulltrúar í nefndinni með málfrelsi.