FÆREYSK MENNINGARVEISLA
KJARVALSSTAÐIR, LAUGARDAGINN 5. ARPÍL KL. 14 – 18

Fjöldi færeyskra listamanna kemur fram í Færeyskri menningarveislu sem haldin verður á vegum Listasafns Reykjavíkur og samstarfsaðila á Kjarvalsstöðum næstkomandi laugardag frá kl. 14 – 18. Fram koma færeyskir tónlistarmenn og dansarar, boðið verður upp á leiðsögn og leiki fyrir alla aldurshópa um sýningu Mikinesar og Leikbrúðuland sýnir brúðuleikhús. Fróðleikur um Færeyjar í máli og myndum verður í boði allan daginn en hátíðinni lýkur með einstakri matarkynningu á færeyskum þjóðarréttum, sem eiga engan sinn líkan.

Hátíðin er haldin í tengslum við myndlistarsýningu færeyska meistarans Mikines sem staðið hefur yfir á Kjarvalsstöðum um nokkurt skeið en lýkur sunnudaginn 6. apríl. Fyrir Færeyingum er Mikines eins og Kjarval er fyrir Íslendingum og sótti hann innblástur í náttúru, landslag og líf Færeyinga. Tengsl landanna ná langt aftur í aldir og langt út fyrir myndlist eins og hátíðin mun endurspegla, en við undirbúning á Mikines sýningunni komst á einstakt samband aðila úr færeysku og íslensku menningarlífi sem skilar sér núna í þessari glæsilegu hátíð.

Samstarfsaðilar Listasafns Reykjavíkur um Færeyska menningarveislu eru Færeyingafélagið í Reykjavík, Vestnorræna ráðið, Færeyska sendiskrifstofan í Reykjavík, Færeyjaferðir, Hótel Örkin og Flugfélag Íslands.

DAGSKRÁ

kl. 14:00   SETNING FÆREYSKRAR MENNINGARVEISLU.

kl. 14:10   Aðalsteinn Ingólfsson, listfræðingur og sýningarstjóri fylgir gestum um sýninguna og segir frá meistara Mikines og samhengi hans og sérstöðu í færeyskri myndlist.

kl. 15:00   Leikbrúðuland Helgu Steffensen sýnir brúðuleikritið Vináttu.

kl. 15:30   Fjölskylduleiðsögn um sýningu Mikines – léttur leikur sem miðar að því að varpa ljósi á málarann Mikines á frumlegan og skemmtilegan hátt.

kl. 16:00   Tríó Katrinar Petersen frá Færeyjum leikur færeysk lög.
Tríóið er skipað hinni kunnu, færeysku söngkonu Katrinu Petersen, Leivi Thomsen sem er einn þekktasti gítarleik ari Færeyinga og bassaleikarnum snjalla Bjarka Meitel.

kl. 16:30   Dansarar frá Færeyjum stíga færeyskan dans og leiðbeina gestum sem vilja taka þátt í dansinum.

kl. 17:00    Kynning á ekta, þjóðlegum, færeyskum mat eins og skerpukjöti, rastakjöti, hvalkjöti, og hvalaspiki. Herlegheitunum er skolað niður með færeyskum bjór.

kl. 14 – 18   Kynning á Færeyjum á vegum  Færeyjaferða, Flugfélags Íslands og Smyril Line.

kl. 18:00  
VEISLULOK.

Öllum sýningum Kjarvalsstaða lýkur sunnudaginn 6. apríl en þá hefst undirbúningur við útskriftarsýningu Listaháskóla Íslands sem verður opnuð 19. apríl.

Sjá hér nánar um sýningardagskrá Kjarvalsstaða.

AÐGANGUR ÓKEYPIS
LISTASAFN REYKJAVÍKUR ER SAFNIÐ ÞITT

Með kveðju,
Soffía Karlsdóttir
kynningarstjóri Listasafns Reykjavíkur
s: 590-1200 / 820-1202
soffia.karlsdottir@reykjavik.is 

 

 

ÓKEYPIS AÐGANGUR / FREE ADMISSION
Kjarvalsstaðir: Opið daglega 10-17
Listasafn Reykjavíkur, sími 590-1200, fax 590-1201, listasafn@reykjavik.is

 

 

 

Ef þú kýst að lesa þetta fréttabréf á netinu höfum við veflæga útgáfu hér
Smelltu hér til að skoða öll útsend fréttabréf
Ef þú óskar þess að hætta að fá þessar upplýsingar geturðu afskráð þig hér